Fyrri kroníkubók

1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29


Kafla 12

Þessir eru þeir, er komu til Davíðs í Siklag, er hann var landflótta fyrir Sál Kíssyni. Voru og þeir meðal kappanna, er veittu honum vígsgengi.
2 Höfðu þeir boga að vopni og voru leiknir að slöngva steinum með hægri og vinstri hendi og að skjóta örvum af boga: Af frændum Sáls, af Benjamínítum:
3 Ahíeser höfuðsmaður og Jóas, Hassemaasynir frá Gíbeu, Jesíel og Pelet Asmavetssynir, Beraka og Jehú frá Anatót,
4 Jismaja frá Gíbeon, kappi meðal þeirra þrjátíu og foringi þeirra þrjátíu, Jeremía, Jehasíel, Jóhanan og Jósabad frá Gedera,
5 Elúsaí, Jerímót, Bealja, Semarja og Sefatja frá Haríf,
6 Elkana, Jissía, Asareel, Jóeser og Jasóbeam Kóraítar,
7 Jóela og Sebadja Jeróhamssynir frá Gedór.
8 Af Gaðítum gengu kappar miklir, hermenn, búnir til bardaga, er skjöld báru og spjót, í lið með Davíð í fjallvíginu í eyðimörkinni. Voru þeir ásýndum sem ljón og fráir sem skógargeitur á fjöllum.
9 Var Eser höfðingi þeirra, annar var Óbadía, þriðji Elíab,
10 fjórði Mismanna, fimmti Jeremía,
11 sjötti Attaí, sjöundi Elíel,
12 áttundi Jóhanan, níundi Elsabad,
13 tíundi Jeremía, ellefti Makbannaí.
14 Þessir voru af niðjum Gaðs, og voru þeir hershöfðingjar. Var hinn minnsti þeirra einn saman hundrað manna maki, en hinn mesti þúsund.
15 Þessir voru þeir, er fóru yfir Jórdan í fyrsta mánuðinum, er hún flóði yfir alla bakka, og stökktu burt öllum dalbyggjum til austurs og vesturs.
16 En nokkrir af Benjamíns- og Júdaniðjum komu til Davíðs í fjallvígið.
17 Gekk Davíð þá út til þeirra, tók til máls og sagði við þá: "Ef þér komið til mín með friði til þess að veita mér lið, þá vil ég fúslega gjöra bandalag við yður, en ef þér komið til að svíkja mig í hendur óvinum mínum, þótt ég hafi ekkert illt aðhafst, þá sjái Guð feðra vorra það og hegni."
18 Þá kom andi yfir Amasaí, höfðingja fyrir hinum þrjátíu, og mælti hann: "Þínir erum vér, Davíð, og með þér, þú Ísaísonur. Heill, heill sé þér, og heill liðsmönnum þínum, því að Guð þinn hjálpar þér." Tók þá Davíð við þeim og gjörði þá að foringjum fyrir sveit sinni.
19 Af Manasse gengu í lið með Davíð, þá er hann fór með Filistum til bardaga við Sál - þó liðsinntu þeir þeim ekki, því að höfðingjar Filista réðu ráðum sínum, sendu hann burt og sögðu: "Hann kynni að ganga í lið með Sál, herra sínum, og gæti það orðið vor bani" -
20 þegar hann kom til Siklag, þá gengu í lið með honum af Manasse: Adna, Jósabad, Jedíael, Míkael, Jósabad, Elíhú og Silletaí, þúsundhöfðingjar Manasse.
21 Veittu þessir Davíð lið gegn ræningjaflokkum, því að allir voru þeir kappar miklir, og urðu þeir foringjar í hernum.
22 Því að dag frá degi komu menn til liðs við Davíð, uns herinn var mikill orðinn sem guðsher.
23 Þetta er manntal á höfðingjum þeirra hertygjaðra manna, er komu til Davíðs í Hebron til þess að fá honum í hendur konungdóm Sáls eftir boði Drottins:
24 Júdamenn, er skjöld báru og spjót, voru 6.800 herbúinna manna.
25 Af Símeonsniðjum 7.100 hraustir hermenn.
26 Af Levíniðjum: 4.600
27 og auk þess Jójada, höfðingi Aronsættar, og 3.700 manns með honum.
28 Og Sadók, ungur maður, hinn mesti kappi. Voru 22 herforingjar í ætt hans.
29 Af Benjamínsniðjum, frændum Sáls, voru 3.000, en allt til þessa héldu flestir þeirra trúnað við ætt Sáls.
30 Af Efraímsniðjum 20.800 nafnkunnra manna í ættum sínum.
31 Af hálfri Manassekynkvísl 18.000 manna, er nafngreindir voru til þess að fara og taka Davíð til konungs.
32 Af Íssakarsniðjum, er báru skyn á tíðir og tíma, svo að þeir vissu, hvað Ísrael skyldi hafast að, 200 höfðingjar, og lutu allir frændur þeirra boði þeirra.
33 Af Sebúlon gengu í herinn 50.000 vígra manna, er höfðu alls konar hervopn, allir með einum huga til þess að hjálpa.
34 Af Naftalí fóru þúsund höfðingjar og með þeim 37.000 manna, er skjöld báru og spjót.
35 Af Dansniðjum 28.600 manna, er búnir voru til bardaga.
36 Af Asser gengu í herinn 40.000 vígra manna.
37 Af þeim hinumegin Jórdanar, af Rúbensniðjum, Gaðsniðjum og hálfri ættkvísl Manasse: 120.000 manna, með alls konar vopn til hernaðar.
38 Allir þessir hermenn, er skipaðir voru í fylkingu, komu samhuga til Hebron til þess að taka Davíð til konungs yfir allan Ísrael. Voru og allir aðrir Ísraelsmenn samhuga í því að taka Davíð til konungs.
39 Og þeir dvöldust þar þrjá daga hjá Davíð og neyttu matar og drykkjar, því að frændur þeirra höfðu búið þeim beina.
40 Auk þess færðu þeir, er bjuggu í nágrenni við þá, allt að Íssakar, Sebúlon og Naftalí, vistir á ösnum, úlföldum, múlum og nautum, mjölmat, fíkjukökur, rúsínukökur, vín, olíu og naut og sauði í ríkum mæli, því að gleði var í Ísrael.