Sakaría

1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14


Kafla 3

Því næst lét hann mig sjá Jósúa æðsta prest, þar sem hann stóð frammi fyrir engli Drottins og Satan honum til hægri handar til þess að ákæra hann.
2 En Drottinn mælti til Satans: "Drottinn ávíti þig, Satan! Drottinn, sem útvalið hefir Jerúsalem, ávíti þig! Er ekki þessi eins og brandur úr báli dreginn?"
3 Jósúa var í óhreinum klæðum, þar er hann stóð frammi fyrir englinum.
4 Þá tók engillinn til máls og mælti til þeirra, er stóðu frammi fyrir honum: "Færið hann úr hinum óhreinu klæðum!" Síðan sagði hann við hann: "Sjá, ég hefi burt numið misgjörð þína frá þér og læt nú færa þig í skrúðklæði."
5 Enn fremur sagði hann: "Látið hreinan ennidúk um höfuð hans!" Þá létu þeir hreinan ennidúk um höfuð hans og færðu hann í klæðin, en engill Drottins stóð hjá.
6 Og engill Drottins vitnaði fyrir Jósúa og sagði:
7 "Svo segir Drottinn allsherjar: Ef þú gengur á mínum vegum og varðveitir boðorð mín, þá skalt þú og stjórna húsi mínu og gæta forgarða minna, og ég heimila þér að ganga meðal þessara þjóna minna."
8 Heyr, Jósúa æðsti prestur, þú og félagar þínir, sem sitja frammi fyrir þér, eru fyrirboðar þess, að ég læt þjón minn Kvist koma.
9 Því sjá, steinninn, sem ég hefi lagt frammi fyrir Jósúa - sjö augu á einum steini - sjá, ég gref á hann letur hans - segir Drottinn allsherjar - og tek burt á einum degi misgjörð þessa lands.
10 Á þeim degi - segir Drottinn allsherjar - munuð þér bjóða hver öðrum inn undir víntré og fíkjutré.