Fimmta Mósebók

1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34


Kafla 33

Þessi er blessunin, er guðsmaðurinn Móse blessaði með Ísraelsmenn, áður en hann andaðist:
2 Drottinn kom frá Sínaí og rann upp fyrir þeim á Seír. Hann lét ljós sitt skína frá Paranfjöllum og kom frá hinum helgu tíu þúsundum, eldingarnar í hægri hendi hans voru þeim til varnar.
3 Já, hann elskar sinn lýð, allir hans heilögu eru í hans hendi. Og þeir fara eftir leiðsögu þinni, sérhver þeirra meðtekur af orðum þínum.
4 Móse setti oss lögmál, óðal Jakobs safnaðar.
5 Og Drottinn varð konungur í Jesjúrún, þá er höfðingjar lýðsins söfnuðust saman, ættkvíslir Ísraels allar samt.
6 Lifi Rúben og deyi ekki, þannig að menn hans verði fáir að tölu.
7 Og þetta er blessunin um Júda: Heyr, Drottinn, bænir Júda, og leið hann aftur til þjóðar sinnar, - með höndum sínum hefir hann barist fyrir hana - og ver þú honum hjálp gegn fjendum hans.
8 Og um Leví sagði hann: Túmmím þín og úrím heyra mönnum hollvinar þíns, þess er þú reyndir hjá Massa og barðist gegn hjá Meríbavötnum,
9 - heyra þeim, er sagði um föður og móður: Ég sá þau ekki, er eigi kannaðist við bræður sína og leit eigi við börnum sínum. Því að þeir varðveittu orð þitt og héldu sáttmála þinn.
10 Þeir kenna Jakob dóma þína og Ísrael lögmál þitt, þeir bera reykelsi fyrir vit þín og alfórn á altari þitt.
11 Blessa, Drottinn, styrkleik hans, og lát þér þóknast verk handa hans. Myl sundur lendar óvina hans og þeirra er hata hann, svo að þeir fái eigi risið upp aftur.
12 Um Benjamín sagði hann: Ljúflingur Drottins býr óhultur hjá honum. Hann verndar hann alla daga og hefir tekið sér bólfestu milli hálsa hans.
13 Um Jósef sagði hann: Blessað af Drottni er land hans með himinsins dýrmætustu gjöf, dögginni, og með djúpinu, er undir hvílir,
14 með hinu dýrmætasta, er sólin framleiðir, og með hinu dýrmætasta, sem tunglin láta spretta,
15 með hinu besta á hinum eldgömlu fjöllum og með hinu dýrmætasta á hinum eilífu hæðum,
16 með hinu dýrmætasta af jörðinni og öllu því, sem á henni er, og með þóknun hans, sem bjó í þyrnirunninum. Þetta komi yfir höfuð Jósefs og í hvirfil hans, sem er höfðingi meðal bræðra sinna!
17 Prýðilegur er frumgetinn uxi hans, og horn hans eru sem horn vísundarins. Með þeim rekur hann þjóðir undir, allt til endimarka jarðarinnar. Þetta eru tíu þúsundir Efraíms, og þetta eru þúsundir Manasse!
18 Um Sebúlon sagði hann: Gleðst þú, Sebúlon, yfir sæförum þínum, og þú, Íssakar, yfir tjöldum þínum!
19 Þjóðflokkum bjóða þeir til fjallsins, þar fórna þeir réttum fórnum, því að þeir munu sjúga í sig nægtir hafsins og hina huldustu fjársjóðu sandsins.
20 Um Gað sagði hann: Blessaður sé sá, sem veitir Gað landrými! Hann hefir lagst niður sem ljónynja, og rífur sundur arm og hvirfil.
21 Hann valdi sér landið, er fyrst var tekið, því að þar var landshluti geymdur ætthöfðingja. Og hann kom með höfðingjum lýðsins, hann framkvæmdi réttlæti Drottins og dóma hans ásamt Ísrael.
22 Um Dan sagði hann: Dan er ljónshvolpur, sem kemur stökkvandi frá Basan.
23 Um Naftalí sagði hann: Naftalí, saddur velþóknunar og fullur af blessun Drottins, tak þú sjó og Suðurland til eignar!
24 Um Asser sagði hann: Blessaðastur af sonunum sé Asser! Veri hann eftirlæti bræðra sinna og vökvi fót sinn í olíu!
25 Slár þínar séu af járni og eir, og afl þitt réni eigi fyrr en ævina þrýtur!
26 Enginn er sem Guð Jesjúrúns, er ekur yfir himininn til hjálpar þér og á skýjunum í tign sinni!
27 Hæli er hinn eilífi Guð, og hið neðra eru eilífir armar. Hann stökkti óvinum þínum undan þér og sagði: Gjöreyð!
28 Og síðan bjó Ísrael óhultur, lind Jakobs ein sér, í landi korns og vínlagar, þar sem himinninn lætur dögg drjúpa.
29 Heill þér, Ísrael! Hver er sem þú? - lýður, sigursæll fyrir hjálp Drottins! Hann er skjöldur þíns fulltingis, og hann er sverð tignar þinnar. Óvinir þínir munu smjaðra fyrir þér, og þú munt fram bruna á hæðum þeirra.