Sálmarnir
Kafla 120
Helgigönguljóð.Ég ákalla Drottin í nauðum mínum, og hann bænheyrir mig.  
2 Drottinn, frelsa sál mína frá ljúgandi vörum, frá tælandi tungu.  
3 Hversu mun fara fyrir þér nú og síðar, þú tælandi tunga?  
4 Örvar harðstjórans eru hvesstar með glóandi viðarkolum.  
5 Vei mér, að ég dvel hjá Mesek, bý hjá tjöldum Kedars.  
6 Nógu lengi hefir sál mín búið hjá þeim er friðinn hata.  
7 Þótt ég tali friðlega, vilja þeir ófrið.