Sálmarnir
Kafla 47
Til söngstjórans. Kóraítasálmur. (47:2)Klappið saman lófum, allar þjóðir, fagnið fyrir Guði með gleðiópi.  
2 (47:3) Því að Drottinn, Hinn hæsti, er ógurlegur, voldugur konungur yfir gjörvallri jörðinni.  
3 (47:4) Hann leggur undir oss lýði og þjóðir fyrir fætur vora.  
4 (47:5) Hann útvaldi handa oss óðal vort, fremdarhnoss Jakobs, sem hann elskar. [Sela]  
5 (47:6) Guð er upp stiginn með fagnaðarópi, með lúðurhljómi er Drottinn upp stiginn.  
6 (47:7) Syngið Guði, syngið, syngið konungi vorum, syngið!  
7 (47:8) Því að Guð er konungur yfir gjörvallri jörðinni, syngið Guði lofsöng!  
8 (47:9) Guð er orðinn konungur yfir þjóðunum, Guð er setstur í sitt heilaga hásæti.  
9 (47:10) Göfugmenni þjóðanna safnast saman ásamt lýð Abrahams Guðs. Því að Guðs eru skildir jarðarinnar, hann er mjög hátt upphafinn.