Sálmarnir
Kafla 64
Til söngstjórans. Davíðssálmur.Heyr, ó Guð, raust mína, er ég kveina, varðveit líf mitt fyrir ógnum óvinarins.  (64:2) 
2 (64:3) Skýl mér fyrir bandalagi bófanna, fyrir óaldarflokki illvirkjanna,  
3 (64:4) er hvetja tungur sínar sem sverð, leggja örvar sínar, beiskyrðin, á streng  
4 (64:5) til þess að skjóta í leyni á hinn ráðvanda, skjóta á hann allt í einu, hvergi hræddir.  
5 (64:6)Þeir binda fastmælum með sér ill áform, tala um að leggja leynisnörur, þeir hugsa: "Hver ætli sjái það?"  
6 (64:7) Þeir upphugsa ranglæti: "Vér erum tilbúnir, vel ráðin ráð!" því að hugskot hvers eins og hjarta er fullt véla.  
7 (64:8) Þá lýstur Guð þá með örinni, allt í einu verða þeir sárir,  
8 (64:9) og tunga þeirra verður þeim að falli. Allir þeir er sjá þá, munu hrista höfuðið.  
9 (64:10) Þá mun hver maður óttast og kunngjöra dáðir Guðs og gefa gætur að verkum hans.  
10 (64:11) Hinn réttláti mun gleðjast yfir Drottni og leita hælis hjá honum, og allir hjartahreinir munu sigri hrósa.