Kafla 61

Til söngstjórans. Með strengjaleik. Eftir Davíð. (61:2)

Heyr, ó Guð, hróp mitt, gef gaum bæn minni.
2 (61:3) Frá endimörkum jarðar hrópa ég til þín, meðan hjarta mitt örmagnast. Hef mig upp á bjarg það, sem mér er of hátt.
3 (61:4) Leið mig, því að þú ert orðinn mér hæli, öruggt vígi gegn óvinum.
4 (61:5) Lát mig gista í tjaldi þínu um eilífð, leita hælis í skjóli vængja þinna. [Sela]
5 (61:6) Því að þú, ó Guð, hefir heyrt heit mín, þú hefir uppfyllt óskir þeirra er óttast nafn þitt.
6 (61:7) Þú munt lengja lífdaga konungs, láta ár hans vara frá kyni til kyns.
7 (61:8) Hann skal sitja um eilífð frammi fyrir Guði, lát miskunn og trúfesti varðveita hann.
8 (61:9) Þá vil ég lofsyngja nafni þínu um aldur, og efna heit mín dag frá degi.