Sálmarnir
Kafla 82
Asafs-sálmur.Guð stendur á guðaþingi, heldur dóm mitt á meðal guðanna:  
2 "Hversu lengi ætlið þér að dæma með rangsleitni og draga taum hinna óguðlegu? [Sela]  
3 Rekið réttar bágstaddra og föðurlausra, látið hinn þjáða og fátæka ná rétti sínum,  
4 bjargið bágstöddum og snauðum, frelsið þá af hendi óguðlegra."  
5 Þeir hafa eigi skyn né skilning, þeir ráfa í myrkri, allar undirstöður jarðarinnar riða.  
6 Ég hefi sagt: "Þér eruð guðir og allir saman synir Hins hæsta,  
7 en sannlega skuluð þér deyja sem menn, falla sem einn af höfðingjunum."  
8 Rís upp, ó Guð, dæm þú jörðina, því að þú ert erfðahöfðingi yfir öllum þjóðum.