Kafla 77

Til söngstjórans. Fyrir Jedútún. Asafs-sálmur. (77:2)

Ég kalla til Guðs og hrópa, kalla til Guðs, að hann megi heyra til mín.
2 (77:3) Þegar ég er í nauðum, leita ég Drottins, rétti út hendur mínar um nætur og þreytist ekki, sál mín er óhuggandi.
3 (77:4) Ég minnist Guðs og kveina, ég styn, og andi minn örmagnast. [Sela]
4 (77:5) Þú heldur uppi augnalokum mínum, mér er órótt og ég má eigi mæla.
5 (77:6) Ég í huga fyrri daga, ár þau sem löngu eru liðin,
6 (77:7) ég minnist strengjaleiks míns um nætur, ég hugleiði í hjarta mínu, og andi minn rannsakar.
7 (77:8) Mun Drottinn þá útskúfa um eilífð og aldrei framar vera náðugur?
8 (77:9) Er miskunn hans lokið um eilífð, fyrirheit hans þrotin um aldir alda?
9 (77:10) Hefir Guð gleymt að sýna líkn, byrgt miskunn sína með reiði? [Sela]
10 (77:11) Þá sagði ég: "Þetta er kvöl mín, að hægri hönd Hins hæsta hefir brugðist."
11 (77:12) Ég víðfrægi stórvirki Drottins, ég vil minnast furðuverka þinna frá fyrri tíðum,
12 (77:13) ég íhuga allar athafnir þínar, athuga stórvirki þín.
13 (77:14) Guð, helgur er vegur þinn, hver er svo mikill Guð sem Drottinn?
14 (77:15) Þú ert Guð, sá er furðuverk gjörir, þú hefir kunngjört mátt þinn meðal þjóðanna.
15 (77:16) Með máttugum armlegg frelsaðir þú lýð þinn, sonu Jakobs og Jósefs. [Sela]
16 (77:17) Vötnin sáu þig, ó Guð, vötnin sáu þig og skelfdust, og undirdjúpin skulfu.
17 (77:18) Vatnið streymdi úr skýjunum, þrumuraust drundi úr skýþykkninu, og örvar þínar flugu.
18 (77:19) Reiðarþrumur þínar kváðu við, leiftur lýstu um jarðríki, jörðin skalf og nötraði.
19 (77:20) Leið þín lá gegnum hafið, stígar þínir gegnum mikil vötn, og spor þín urðu eigi rakin.
20 (77:21) Þú leiddir lýð þinn eins og hjörð fyrir Móse og Aron.