Sálmarnir
Kafla 23
Davíðssálmur.Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta.  
2 Á grænum grundum lætur hann mig hvílast, leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðis njóta.  
3 Hann hressir sál mína, leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns síns.  
4 Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt, því að þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur hugga mig.  
5 Þú býr mér borð frammi fyrir fjendum mínum, þú smyr höfuð mitt með olíu, bikar minn er barmafullur.  
6 Já, gæfa og náð fylgja mér alla ævidaga mína, og í húsi Drottins bý ég langa ævi.