Kafla 62

Til söngstjórans. Fyrir Jedútún. Davíðssálmur. (62:2)

Bíð róleg eftir Guði, sála mín, frá honum kemur hjálpræði mitt.
2 (62:3) Hann einn er klettur minn og hjálpræði, háborg mín - ég verð eigi valtur á fótum.
3 (62:4) Hversu lengi ætlið þér að ryðjast allir saman gegn einum manni til að fella hann eins og hallan vegg, eins og hrynjandi múr?
4 (62:5) Þeir ráðgast um það eitt að steypa honum úr tign hans, þeir hafa yndi af lygi, þeir blessa með munninum, en bölva í hjartanu. [Sela]
5 (62:6) Bíð róleg eftir Guði, sála mín, því að frá honum kemur von mín.
6 (62:7) Hann einn er klettur minn og hjálpræði, háborg mín - ég verð eigi valtur á fótum.
7 (62:8) Hjá Guði er hjálpræði mitt og vegsemd, minn örugga klett og hæli mitt hefi ég í Guði.
8 (62:9) Treyst honum, allur þjóðsöfnuðurinn, úthellið hjörtum yðar fyrir honum, Guð er vort hæli. [Sela]
9 (62:10) Hégóminn einn eru mennirnir, tál eru mannanna börn, á metaskálunum lyftast þeir upp, einber hégómi eru þeir allir saman.
10 (62:11) Treystið eigi ránfeng og alið eigi fánýta von til rændra muna, þótt auðurinn vaxi, þá gefið því engan gaum.
11 (62:12) Eitt sinn hefir Guð talað, tvisvar hefi ég heyrt það: "Hjá Guði er styrkleikur."
12 (62:13) Já, hjá þér, Drottinn, er miskunn, því að þú geldur sérhverjum eftir verkum hans.