Sálmarnir
Kafla 34
Sálmur Davíðs, þá er hann gjörði sér upp vitfirringu frammi fyrir Abímelek, svo að Abímelek rak hann í burt, og hann fór burt. (34:2)Ég vil vegsama Drottin alla tíma, ætíð sé lof hans mér í munni.  
2 (34:3) Sál mín hrósar sér af Drottni, hinir hógværu skulu heyra það og fagna.  
3 (34:4) Miklið Drottin ásamt mér, tignum í sameiningu nafn hans.  
4 (34:5) Ég leitaði Drottins, og hann svaraði mér, frelsaði mig frá öllu því er ég hræddist.  
5 (34:6) Lítið til hans og gleðjist, og andlit yðar skulu eigi blygðast.  
6 (34:7) Hér er volaður maður sem hrópaði, og Drottinn heyrði hann og hjálpaði honum úr öllum nauðum hans.  
7 (34:8) Engill Drottins setur vörð kringum þá er óttast hann, og frelsar þá.  
8 (34:9) Finnið og sjáið, að Drottinn er góður, sæll er sá maður er leitar hælis hjá honum.  
9 (34:10) Óttist Drottin, þér hans heilögu, því að þeir er óttast hann líða engan skort.  
10 (34:11) Ung ljón eiga við skort að búa og svelta, en þeir er leita Drottins fara einskis góðs á mis.  
11 (34:12) Komið, börn, hlýðið á mig, ég vil kenna yður ótta Drottins.  
12 (34:13) Ef einhver óskar lífs, þráir lífdaga til þess að njóta hamingjunnar,  
13 (34:14) þá varðveit tungu þína frá illu og varir þínar frá svikatali,  
14 (34:15) forðast illt og gjörðu gott, leita friðar og legg stund á hann.  
15 (34:16) Augu Drottins hvíla á réttlátum, og eyru hans gefa gaum að hrópi þeirra.  
16 (34:17) Auglit Drottins horfir á þá er illa breyta, til þess að afmá minningu þeirra af jörðunni.  
17 (34:18) Ef réttlátir hrópa, þá heyrir Drottinn, úr öllum nauðum þeirra frelsar hann þá.  
18 (34:19) Drottinn er nálægur þeim er hafa sundurmarið hjarta, þeim er hafa sundurkraminn anda, hjálpar hann.  
19 (34:20) Margar eru raunir réttláts manns, en Drottinn frelsar hann úr þeim öllum.  
20 (34:21) Hann gætir allra beina hans, ekki eitt af þeim skal brotið.  
21 (34:22) Ógæfa drepur óguðlegan mann, þeir er hata hinn réttláta, skulu sekir dæmdir.  
22 (34:23) Drottinn frelsar líf þjóna sinna, enginn sá er leitar hælis hjá honum, mun sekur dæmdur.