Kafla 45

Til söngstjórans. Lag: Liljur. Kóraítamaskíl. Brúðkaupskvæði. (45:2)

Hjarta mitt svellur af ljúfum orðum, ég flyt konungi kvæði mitt, tunga mín er sem penni hraðritarans.
2 (45:3) Fegurri ert þú en mannanna börn, yndisleik er úthellt yfir varir þínar, fyrir því hefir Guð blessað þig að eilífu.
3 (45:4) Gyrð lendar þínar sverði, þú hetja, ljóma þínum og vegsemd.
4 (45:5) Sæk fram sigursæll sakir tryggðar og réttlætis, hægri hönd þín mun sýna þér ógurlega hluti.
5 (45:6) Örvar þínar eru hvesstar, þjóðir falla að fótum þér, fjandmenn konungs eru horfnir.
6 (45:7) Hásæti þitt er Guðs hásæti um aldur og ævi, sproti ríkis þíns er réttlætis-sproti.
7 (45:8) Þú elskar réttlæti og hatar ranglæti, fyrir því hefir Guð, þinn Guð, smurt þig með fagnaðarolíu framar félögum þínum.
8 (45:9) Myrra og alóe og kassía eru öll þín klæði, frá fílabeinshöllinni gleður strengleikurinn þig.
9 (45:10) Konungadætur eru meðal vildarkvenna þinna, konungsbrúðurin stendur þér til hægri handar í skrúða Ófír-gulls.
10 (45:11) "Heyr, dóttir, og hneig eyra þitt! Gleym þjóð þinni og föðurlandi,
11 (45:12) að konungi megi renna hugur til fegurðar þinnar, því að hann er herra þinn og honum átt þú að lúta.
12 (45:13) Frá Týrus munu menn koma með gjafir, auðugustu menn lýðsins leita hylli þinnar."
13 (45:14) Eintómt skraut er konungsdóttirin, perlum sett og gullsaumi eru klæði hennar.
14 (45:15) Í glitofnum klæðum er hún leidd fyrir konung, meyjar fylgja henni, vinkonur hennar eru færðar fram fyrir þig.
15 (45:16) Þær eru leiddar inn með fögnuði og gleði, þær fara inn í höll konungs.
16 (45:17) Í stað feðra þinna komi synir þínir, þú munt gjöra þá að höfðingjum um land allt.
17 (45:18) Ég vil gjöra nafn þitt minnisstætt öllum komandi kynslóðum, þess vegna skulu þjóðir lofa þig um aldur og ævi.