Kafla 8

Til söngstjórans. Á gittít. Davíðssálmur. (8:2)

Drottinn, Guð vor, hversu dýrlegt er nafn þitt um alla jörðina! Þú breiðir ljóma þinn yfir himininn.
2 (8:3) Af munni barna og brjóstmylkinga hefir þú gjört þér vígi til varnar gegn óvinum þínum, til þess að þagga niður í hefndargirni óvinarins.
3 (8:4) Þegar ég horfi á himininn, verk handa þinna, tunglið og stjörnurnar, er þú hefir skapað,
4 (8:5) hvað er þá maðurinn þess, að þú minnist hans, og mannsins barn, að þú vitjir þess?
5 (8:6) Þú lést hann verða litlu minni en Guð, með sæmd og heiðri krýndir þú hann.
6 (8:7) Þú lést hann ríkja yfir handaverkum þínum, allt lagðir þú að fótum hans:
7 (8:8) sauðfénað allan og uxa, og auk þess dýr merkurinnar,
8 (8:9) fugla loftsins og fiska hafsins, allt það er fer hafsins vegu.
9 (8:10) Drottinn, Guð vor, hversu dýrlegt er nafn þitt um alla jörðina!