Kafla 18

Til söngstjórans. Eftir Davíð, þjón Drottins, er flutti Drottni orð þessara ljóða, þá er Drottinn frelsaði hann af hendi allra óvina hans og af hendi Sáls. (18:2)

Hann mælti: Ég elska þig, Drottinn, þú styrkur minn.
2 (18:3) Drottinn, bjarg mitt og vígi og frelsari minn, Guð minn, hellubjarg mitt, þar sem ég leita hælis, skjöldur minn og horn hjálpræðis míns, háborg mín!
3 (18:4) Lofaður sé Drottinn, hrópa ég, og ég frelsast frá óvinum mínum.
4 (18:5) Brimöldur dauðans umkringdu mig, elfur glötunarinnar skelfdu mig,
5 (18:6) snörur Heljar luktu um mig, möskvar dauðans féllu yfir mig.
6 (18:7) Í angist minni kallaði ég á Drottin, og til Guðs míns hrópaði ég. Hann heyrði raust mína í helgidómi sínum, og óp mitt barst til eyrna honum.
7 (18:8) Jörðin bifaðist og nötraði, undirstöður fjallanna skulfu, þær bifuðust, því að hann var reiður,
8 (18:9) reykur gekk fram úr nösum hans og eyðandi eldur af munni hans, glóðir brunnu út frá honum.
9 (18:10) Hann sveigði himininn og steig niður, og skýsorti var undir fótum hans.
10 (18:11) Hann steig á bak kerúb og flaug af stað og sveif á vængjum vindarins.
11 (18:12) Hann gjörði myrkur að skýli sínu, regnsorta og skýþykkni að fylgsni sínu allt um kring.
12 (18:13) Frá ljómanum fyrir honum brutust hagl og eldglæringar gegnum ský hans.
13 (18:14) Þá þrumaði Drottinn á himnum, og Hinn hæsti lét raust sína gjalla.
14 (18:15) Hann skaut örvum sínum og tvístraði óvinum sínum, lét eldingar leiftra og hræddi þá.
15 (18:16) Þá sá í mararbotn, og undirstöður jarðarinnar urðu berar fyrir ógnun þinni, Drottinn, fyrir andgustinum úr nösum þínum.
16 (18:17) Hann seildist niður af hæðum og greip mig, dró mig upp úr hinum miklu vötnum.
17 (18:18) Hann frelsaði mig frá hinum sterku óvinum mínum, frá fjandmönnum mínum, er voru mér yfirsterkari.
18 (18:19) Þeir réðust á mig á mínum óheilladegi, en Drottinn var mín stoð.
19 (18:20) Hann leiddi mig út á víðlendi, frelsaði mig, af því að hann hafði þóknun á mér.
20 (18:21) Drottinn fer með mig eftir réttlæti mínu, eftir hreinleik handa minna geldur hann mér,
21 (18:22) því að ég hefi varðveitt vegu Drottins og hefi ekki reynst ótrúr Guði mínum.
22 (18:23) Allar skipanir hans hefi ég fyrir augum, og boðorðum hans þokaði ég eigi burt frá mér.
23 (18:24) Ég var lýtalaus fyrir honum og gætti mín við misgjörðum.
24 (18:25) Fyrir því galt Drottinn mér eftir réttlæti mínu, eftir hreinleik handa minna fyrir augliti hans.
25 (18:26) Gagnvart ástríkum ert þú ástríkur, gagnvart ráðvöndum ráðvandur,
26 (18:27) gagnvart hreinum hreinn, en gagnvart rangsnúnum ert þú afundinn.
27 (18:28) Þú hjálpar þjáðum lýð, en gjörir hrokafulla niðurlúta.
28 (18:29) Já, þú lætur lampa minn skína, Drottinn, Guð minn, þú lýsir mér í myrkrinu.
29 (18:30) Því að fyrir þína hjálp brýt ég múra, fyrir hjálp Guðs míns stekk ég yfir borgarveggi.
30 (18:31) Vegur Guðs er lýtalaus, orð Drottins er hreint, skjöldur er hann öllum þeim sem leita hælis hjá honum.
31 (18:32) Hver er Guð nema Drottinn, og hver er hellubjarg utan vor Guð?
32 (18:33) Sá Guð sem gyrðir mig styrkleika og gjörir veg minn sléttan,
33 (18:34) sem gjörir fætur mína sem hindanna og veitir mér fótfestu á hæðunum,
34 (18:35) sem æfir hendur mínar til hernaðar, svo að armar mínir benda eirbogann.
35 (18:36) Og þú gafst mér skjöld hjálpræðis þíns, og hægri hönd þín studdi mig, og lítillæti þitt gjörði mig mikinn.
36 (18:37) Þú rýmdir til fyrir skrefum mínum, og ökklar mínir riðuðu ekki.
37 (18:38) Ég elti óvini mína og náði þeim og sneri ekki aftur, fyrr en ég hafði gjöreytt þeim.
38 (18:39) Ég molaði þá sundur, þeir máttu eigi upp rísa, þeir hnigu undir fætur mér.
39 (18:40) Þú gyrtir mig styrkleika til ófriðarins, beygðir fjendur mína undir mig.
40 (18:41) Þú lést mig sjá bak óvina minna, og fjendum mínum eyddi ég.
41 (18:42) Þeir hrópuðu, en enginn kom til hjálpar, þeir hrópuðu til Drottins, en hann svaraði þeim ekki.
42 (18:43) Og ég muldi þá sem mold á jörð, tróð þá fótum sem saur á strætum.
43 (18:44) Þú frelsaðir mig úr fólkorustum, gjörðir mig að höfðingja þjóðanna, lýður sem ég þekkti ekki þjónar mér.
44 (18:45) Óðara en þeir heyra mín getið, hlýða þeir mér, útlendingar smjaðra fyrir mér.
45 (18:46) Útlendingar dragast upp og koma skjálfandi fram úr fylgsnum sínum.
46 (18:47) Lifi Drottinn, lofað sé mitt bjarg, og hátt upp hafinn sé Guð hjálpræðis míns,
47 (18:48) sá Guð sem veitti mér hefndir og braut þjóðir undir mig,
48 (18:49) sem hreif mig úr höndum óvina minna. Og yfir mótstöðumenn mína hófst þú mig, frá ójafnaðarmönnum frelsaðir þú mig.
49 (18:50) Fyrir því vil ég vegsama þig, Drottinn, meðal þjóðanna og lofsyngja þínu nafni.
50 (18:51) Hann veitir konungi sínum mikla hjálp og auðsýnir miskunn sínum smurða, Davíð og niðjum hans að eilífu.