Sálmarnir
Kafla 121
Helgigönguljóð Ég hef augu mín til fjallanna: Hvaðan kemur mér hjálp?  
2 Hjálp mín kemur frá Drottni, skapara himins og jarðar.  
3 Hann mun eigi láta fót þinn skriðna, vörður þinn blundar ekki.  
4 Nei, hann blundar ekki og sefur ekki, hann, vörður Ísraels.  
5 Drottinn er vörður þinn, Drottinn skýlir þér, hann er þér til hægri handar.  
6 Um daga mun sólarhitinn eigi vinna þér mein, né heldur tunglið um nætur.  
7 Drottinn mun vernda þig fyrir öllu illu, hann mun vernda sál þína.  
8 Drottinn mun varðveita útgöngu þína og inngöngu héðan í frá og að eilífu.