Sálmarnir
Kafla 140
Til söngstjórans. Davíðssálmur. (140:2)Frelsa mig, Drottinn, frá illmennum, vernda mig fyrir ofríkismönnum,  
2 (140:3) þeim er hyggja á illt í hjarta sínu og vekja ófrið á degi hverjum.  
3 (140:4) Þeir gjöra tungur sínar hvassar sem höggormar, nöðrueitur er undir vörum þeirra. [Sela]  
4 (140:5) Varðveit mig, Drottinn, fyrir hendi óguðlegra, vernda mig fyrir ofríkismönnum, er hyggja á að bregða fæti fyrir mig.  
5 (140:6) Ofstopamenn hafa lagt gildrur í leyni fyrir mig og þanið út snörur eins og net, hjá vegarbrúninni hafa þeir lagt möskva fyrir mig. [Sela]  
6 (140:7) Ég sagði við Drottin: Þú ert Guð minn, ljá eyra, Drottinn, grátbeiðni minni.  
7 (140:8) Drottinn Guð, mín máttuga hjálp, þú hlífir höfði mínu á orustudeginum.  
8 (140:9) Uppfyll eigi, Drottinn, óskir hins óguðlega, lát vélar hans eigi heppnast. [Sela]  
9 (140:10) Þeir skulu eigi hefja höfuðið umhverfis mig, ranglæti vara þeirra skal hylja sjálfa þá.  
10 (140:11) Lát rigna á þá eldsglóðum, hrind þeim í gryfjur, svo að þeir fái eigi upp staðið.  
11 (140:12) Illmáll maður skal eigi fá staðist í landinu, ofríkismanninn skal ógæfan elta með sífelldum höggum.  
12 (140:13) Ég veit, að Drottinn flytur mál hrjáðra, rekur réttar snauðra.  
13 (140:14) Vissulega skulu hinir réttlátu lofa nafn þitt, hinir hreinskilnu búa fyrir augliti þínu.