Sálmarnir
Kafla 129
Helgigönguljóð.Þeir hafa fjandskapast mjög við mig frá æsku, - skal Ísrael segja -  
2 þeir hafa fjandskapast mjög við mig frá æsku, en þó eigi borið af mér.  
3 Plógmennirnir hafa plægt um hrygg mér, gjört plógför sín löng,  
4 en Drottinn hinn réttláti hefir skorið í sundur reipi óguðlegra.  
5 Sneypast skulu þeir og undan hörfa, allir þeir sem hata Síon.  
6 Þeir skulu verða sem gras á þekju, er visnar áður en það frævist.  
7 Sláttumaðurinn skal eigi fylla hönd sína né sá fang sitt sem bindur,  
8 og þeir sem fram hjá fara skulu ekki segja: "Blessun Drottins sé með yður." Vér blessum yður í nafni Drottins!