Kafla 58

Til söngstjórans. Lag: Spill eigi. Davíðs-miktam. (58:2)

Talið þér í sannleika það sem rétt er, þér guðir? Dæmið þér mennina með sanngirni?
2 (58:3) Nei, allir aðhafist þér ranglæti á jörðu, hendur yðar vega út ofbeldi.
3 (58:4) Hinir illu eru frá móðurlífi viknir af leið, lygarar fara villir vegar frá móðurskauti.
4 (58:5) Eitur þeirra er eins og höggormseitur, þeir eru eins og dauf naðra, sem lokar eyrunum
5 (58:6) til þess að heyra ekki raust særingamannsins né hins slungna töframanns.
6 (58:7) Guð, brjót sundur tennurnar í munni þeirra, mölva jaxlana úr ljónunum, Drottinn!
7 (58:8) Lát þá hverfa eins og vatn, sem rennur burt; miði hann örvum sínum á þá, þá hníga þeir,
8 (58:9) eins og snigillinn, sem rennur í sundur og hverfur, ótímaburður konunnar, er eigi sá sólina.
9 (58:10) Áður en pottar yðar kenna hitans af þyrnunum, hvort sem þyrnarnir eru grænir eða glóandi, feykir hann hinum illa burt.
10 (58:11) Þá mun hinn réttláti fagna, af því að hann hefir fengið að sjá hefndina, hann mun lauga fætur sína í blóði hinna óguðlegu.
11 (58:12) Þá munu menn segja: Hinn réttláti hlýtur þó ávöxt; það er þó til Guð, sem dæmir á jörðunni.