Kafla 36

Til söngstjórans. Eftir Davíð, þjón Drottins. (36:2)

Rödd syndarinnar talar til hins guðlausa í fylgsnum hjarta hans, enginn guðsótti býr í huga hans.
2 (36:3) Hún smjaðrar fyrir honum í augum hans og misgjörð hans verður uppvís og hann verður fyrir hatri.
3 (36:4) Orðin af munni hans eru tál og svik, hann er hættur að vera hygginn og breyta vel.
4 (36:5) Í hvílu sinni hyggur hann á tál, hann fetar vonda vegu, forðast eigi hið illa.
5 (36:6) Drottinn, til himna nær miskunn þín, til skýjanna trúfesti þín.
6 (36:7) Réttlæti þitt er sem fjöll Guðs, dómar þínir sem reginhaf. Mönnum og skepnum hjálpar þú, Drottinn.
7 (36:8) Hversu dýrmæt er miskunn þín, ó Guð, mannanna börn leita hælis í skugga vængja þinna.
8 (36:9) Þau seðjast af feiti húss þíns, og þú lætur þau drekka úr lækjum unaðsemda þinna.
9 (36:10) Hjá þér er uppspretta lífsins, í þínu ljósi sjáum vér ljós.
10 (36:11) Lát miskunn þína haldast við þá er þekkja þig, og réttlæti þitt við þá sem hjartahreinir eru.
11 (36:12) Lát eigi fót hins hrokafulla troða á mér né hönd óguðlegra hrekja mig burt.
12 (36:13) Þar eru illgjörðamennirnir fallnir, þeim er varpað um koll og þeir fá eigi risið upp aftur.