Sálmarnir
Kafla 20
Til söngstjórans. Davíðssálmur. (20:2)Drottinn bænheyri þig á degi neyðarinnar, nafn Jakobs Guðs bjargi þér.  
2 (20:3) Hann sendi þér hjálp frá helgidóminum, styðji þig frá Síon.  
3 (20:4) Hann minnist allra fórnargjafa þinna og taki brennifórn þína gilda. [Sela]  
4 (20:5) Hann veiti þér það er hjarta þitt þráir, og veiti framgang öllum áformum þínum.  
5 (20:6) Ó að vér mættum fagna yfir sigri þínum og veifa fánanum í nafni Guðs vors. Drottinn uppfylli allar óskir þínar.  
6 (20:7) Nú veit ég, að Drottinn veitir hjálp sínum smurða, svarar honum frá sínum helga himni, í máttarverkum kemur fulltingi hægri handar hans fram.  
7 (20:8) Hinir stæra sig af vögnum sínum og stríðshestum, en vér af nafni Drottins, Guðs vors.  
8 (20:9) Þeir fá knésig og falla, en vér rísum og stöndum uppréttir.  
9 (20:10) Drottinn! Hjálpa konunginum og bænheyr oss, er vér hrópum.