Sálmarnir
Kafla 122
Helgigönguljóð. Eftir Davíð.Ég varð glaður, er menn sögðu við mig: "Göngum í hús Drottins."  
2 Fætur vorir standa í hliðum þínum, Jerúsalem.  
3 Jerúsalem, þú hin endurreista, borgin þar sem öll þjóðin safnast saman,  
4 þangað sem kynkvíslirnar fara, kynkvíslir Drottins - það er regla fyrir Ísrael - til þess að lofa nafn Drottins,  
5 því að þar standa dómarastólar, stólar fyrir Davíðs ætt.  
6 Biðjið Jerúsalem friðar, hljóti heill þeir, er elska þig.  
7 Friður sé kringum múra þína, heill í höllum þínum.  
8 Sakir bræðra minna og vina óska ég þér friðar.  
9 Sakir húss Drottins, Guðs vors, vil ég leita þér hamingju.