Sálmarnir
Kafla 89
Etans-maskíl Esraíta. (89:2)Um náðarverk Drottins vil ég syngja að eilífu, kunngjöra trúfesti þína með munni mínum frá kyni til kyns,  
2 (89:3) því að ég hefi sagt: Náð þín er traust að eilífu, á himninum grundvallaðir þú trúfesti þína.  
3 (89:4) Ég hefi gjört sáttmála við minn útvalda, unnið Davíð þjóni mínum svolátandi eið:  
4 (89:5) "Ég vil staðfesta ætt þína að eilífu, reisa hásæti þitt frá kyni til kyns." [Sela]  
5 (89:6) Þá lofuðu himnarnir dásemdarverk þín, Drottinn, og söfnuður heilagra trúfesti þína.  
6 (89:7) Því að hver er í himninum jafn Drottni, hver er líkur Drottni meðal guðasonanna?  
7 (89:8) Guð er ægilegur í hópi heilagra, mikill er hann og óttalegur öllum þeim, sem eru umhverfis hann.  
8 (89:9) Drottinn, Guð hersveitanna, hver er sem þú? Þú ert voldugur, Drottinn, og trúfesti þín er umhverfis þig.  
9 (89:10) Þú ræður yfir ofstopa hafsins, þegar öldur þess hefjast, stöðvar þú þær.  
10 (89:11) Þú knosaðir skrímslið eins og veginn mann, með þínum volduga armi tvístraðir þú óvinum þínum.  
11 (89:12) Þinn er himinninn, þín er og jörðin, þú hefir grundvallað veröldina og allt sem í henni er.  
12 (89:13) Þú hefir skapað norðrið og suðrið, Tabor og Hermon fagna yfir nafni þínu.  
13 (89:14) Þú hefir máttugan armlegg, hönd þín er sterk, hátt upphafin hægri hönd þín.  
14 (89:15) Réttlæti og réttvísi er grundvöllur hásætis þíns, miskunn og trúfesti ganga frammi fyrir þér.  
15 (89:16) Sæll er sá lýður, sem þekkir fagnaðarópið, sem gengur í ljósi auglitis þíns, Drottinn.  
16 (89:17) Þeir gleðjast yfir nafni þínu alla daga og fagna yfir réttlæti þínu,  
17 (89:18) því að þú ert þeirra máttug prýði, og sakir velþóknunar þinnar munt þú hefja horn vort,  
18 (89:19) því að Drottni heyrir skjöldur vor, konungur vor Hinum heilaga í Ísrael.  
19 (89:20) Þá talaðir þú í sýn til dýrkanda þíns og sagðir: "Ég hefi sett kórónu á kappa, ég hefi upphafið útvaldan mann af lýðnum.  
20 (89:21) Ég hefi fundið Davíð þjón minn, smurt hann með minni heilögu olíu.  
21 (89:22) Hönd mín mun gjöra hann stöðugan og armleggur minn styrkja hann.  
22 (89:23) Óvinurinn skal eigi ráðast að honum, og ekkert illmenni skal kúga hann,  
23 (89:24) heldur skal ég gjöra út af við fjendur hans að honum ásjáandi, og hatursmenn hans skal ég ljósta.  
24 (89:25) Trúfesti mín og miskunn skulu vera með honum, og fyrir sakir nafns míns skal horn hans gnæfa hátt.  
25 (89:26) Ég legg hönd hans á hafið og hægri hönd hans á fljótin.  
26 (89:27) Hann mun segja við mig: Þú ert faðir minn, Guð minn og klettur hjálpræðis míns.  
27 (89:28) Og ég vil gjöra hann að frumgetning, að hinum hæsta meðal konunga jarðarinnar.  
28 (89:29) Ég vil varðveita miskunn mína við hann að eilífu, og sáttmáli minn við hann skal stöðugur standa.  
29 (89:30) Ég læt niðja hans haldast við um aldur og hásæti hans meðan himinninn er til.  
30 (89:31) Ef synir hans hafna lögmáli mínu og ganga eigi eftir boðum mínum,  
31 (89:32) ef þeir vanhelga lög mín og varðveita eigi boðorð mín,  
32 (89:33) þá vil ég vitja afbrota þeirra með vendinum og misgjörða þeirra með plágum,  
33 (89:34) en miskunn mína mun ég ekki frá honum taka og eigi bregða trúfesti minni.  
34 (89:35) Ég vil eigi vanhelga sáttmála minn og eigi breyta því, er mér hefir af vörum liðið.  
35 (89:36) Ég hefi einu sinni svarið við heilagleik minn og mun aldrei svíkja Davíð:  
36 (89:37) Niðjar hans skulu haldast við um aldur og hásæti hans sem sólin fyrir mér.  
37 (89:38) Það skal standa stöðugt að eilífu sem tunglið, svo sannarlega sem áreiðanlegt vitni er á himnum." [Sela]  
38 (89:39) Og þó hefir þú útskúfað og hafnað og reiðst þínum smurða.  
39 (89:40) Þú hefir riftað sáttmálanum við þjón þinn, vanhelgað kórónu hans og fleygt henni til jarðar.  
40 (89:41) Þú hefir brotið niður alla múrveggi hans og lagt virki hans í eyði.  
41 (89:42) Allir vegfarendur ræna hann, hann er til háðungar orðinn nágrönnum sínum.  
42 (89:43) Þú hefir hafið hægri hönd fjenda hans, glatt alla óvini hans.  
43 (89:44) Þú hefir og látið sverðseggjar hans hörfa undan og eigi látið hann standast í bardaganum.  
44 (89:45) Þú hefir látið endi á verða vegsemd hans og hrundið hásæti hans til jarðar.  
45 (89:46) Þú hefir stytt æskudaga hans og hulið hann skömm. [Sela]  
46 (89:47) Hversu lengi, Drottinn, ætlar þú að dyljast, á reiði þín ætíð að brenna sem eldur?  
47 (89:48) Minnst þú, Drottinn, hvað ævin er, til hvílíks hégóma þú hefir skapað öll mannanna börn.  
48 (89:49) Hver er sá, er lifi og sjái eigi dauðann, sá er bjargi sálu sinni úr greipum Heljar. [Sela]  
49 (89:50) Hvar eru þín fyrri náðarverk, ó Drottinn, þau er þú í trúfesti þinni sórst Davíð?  
50 (89:51) Minnst, ó Drottinn, háðungar þjóna þinna, að ég verð að bera í skauti smánan margra þjóða,  
51 (89:52) er óvinir þínir, Drottinn, smána mig með, smána fótspor þíns smurða.  
52 (89:53) Lofaður sé Drottinn að eilífu. Amen. Amen.