Sálmarnir
Kafla 126
Helgigönguljóð.Þegar Drottinn sneri við hag Síonar, þá var sem oss dreymdi.  
2 Þá fylltist munnur vor hlátri, og tungur vorar fögnuði. Þá sögðu menn meðal þjóðanna: "Mikla hluti hefir Drottinn gjört við þá."  
3 Drottinn hefir gjört mikla hluti við oss, vér vorum glaðir.  
4 Snú við hag vorum, Drottinn, eins og þú gjörir við lækina í Suðurlandinu.  
5 Þeir sem sá með tárum, munu uppskera með gleðisöng.  
6 Grátandi fara menn og bera sæðið til sáningar, með gleðisöng koma þeir aftur og bera kornbindin heim.